Ok núna þarf einhver sem þekkir klassískt rokk að hjálpa mér aðeins. ég hef lengi hlustað á the who, og mér hefur alltaf fundist þeir algerir snillingar, og Lagið teenage wasteland hefur alltaf verið í uppáhaldi hjá mér. Svo var vinur minn eitthvað að tala um CSI new york (the who spila lögin í öllum CSI þáttunum) og hann sagði að lagið þar héti Baba O'Reilly. Ég harðneitaði og sagði að það héti Teenage Wasteland. Hann neitaði að viðurkenna það, þannig að ég ákvað að tékka á þessu. Þá sá ég að lagið heitir Baba O'Reilly. Þannig að ég fór og downloadi Baba O'Reilly og þetta er nákvæmlega sama lag. Hvað er málið? Er Teenage Wasteland rangur titill sem einhver vitleysingur á DC bjó til og það bara festist, eða er einhver önnur ástæða?
In such a world as this does one dare to think for himself?