Þar kom að því. Hann hvarf. Nú munu ekki koma fleiri komment frá leifi2. Leifur2 er ekkert grípandi. Til hvers að taka við kommentum frá leifi2? Þess vegna hefur leifur2 horfið og þið munuð aldrei aftur fá “1 ný skilaboð” frá leifi2.


Eruð þið fagnandi? Eruð þið grátandi? Eruð þið reitandi hár ykkar að reyna að fá mig til að skilja að öllum sé nákvæmlega sama?


Hér er hið nýja nafn leifs2: Mizzeeh. Mizzeeh.

Nafnið Mizzeeh hefur kosti með sér. Í fyrsta lagi byrjar það á M. M er flottur stafur, ég hef oft laðast að þeim staf. Messiah, Martha, Mr.Lonely, Mér hlakkar svo til og svo framvegis.

Í öðru lagi þá er það með tveimur e-um.

Ég vona að þið séuð einhvers fróðari um ýmis mál núna.

Afsakið enn einn tilgangslausan póstinn, þeir verða ekki fleiri, nema að þið teljið sögukork eins og ég gerði með Smokey tilgangslausan. Hér má nefna að sá korkur var ekki tilgangslaus. Fljótlega eftir þann kork birtist korkur eftir hann á enn einu notendanafninu, þar sem hann segist vera hættur, ein af ástæðunum sem taldar eru upp er að “leifur2 hafi verið svo lélegt sonn”.

Útúrdúr.

Héðan í frá mun ég ekki gera neina korka á /forsida nema sögukorka um málefni sem brenna á hugurum þá stundina, nema eitthvað stórmerkilegt gerist.



Með von um góðar viðtökur, Mizzeeh, fv. leifur2