hérna, mér finnst stórfurðulegt að það megi ekki skrifa það sem maður vill í korka hérna á huga, sérstaklega þar sem enginn er skyldaður til að lesa/svara/pæla í korkunum hérna, þá finnst mér það mjög barnarlegt að banna fólk fyrir að gera “nöldurkork um mér er kallt..” :) stjórnendur huga, hugsið um fólk sem barnalegt og óþroskað, lítið í eigin barm, hvað annað en barnaskapur og óþroski er þessi nýja stefna hjá huga að banna fólk fyirir að gera korka um “ekki neitt” þegar það er ákaflega grátt svæði hvað “ekki neitt” er um ? ;) …

finnst það ætti bara að banna fyrir ærumeiðingar eða eitthvað sem má ekki rita samkvæmt landslögum, jú það eru vitanlega hugareglur en þær má endurskoða, þ.e. ef þess þarf, … og já, fólk sem kvartar undan fólki sem er að skrifa um ekki neitt og kallar það “sad” … hvort er meira sad, að gelgja skrifi póst með vinkonu sinni á huga, voða sátt með sjálfa sig að kunna á huga, eða manneskja sem lítur á sig sem þroskaðann einstakling og löngu kominn yfir gelgjuna sem úthúðar stúlkuna sem gerði póstinn skammyrðum :) …


og ef einhver gerir póst sem hljómar t.d. “ég er stigahóra…” eða eitthvað … þá ætti hann að fá PM með aðvörun, og ef hann (hann notandinn…getur átt við um kvk og kk;)) hættir ekki, þá skal banna hann, eða eitthvað allavega ekki þessi fáránlega nýja stefna hjá huga að banna fólk fyrir það sem þeir þykjast geta kallað “tilgangslausa korka”