Ég var einhverntíma að syngja “Óli skans” í huganum og þá fór ég aðeins að hugsa:
Það er alltaf verið að tala um menn sem nauðga og berja konur og eiginmenn sem misþyrma konunum sínum. En hvað með konurnar? Eru ekki til neinar konur sem hafa barið mennina sína til óbóta? Láta mennirnir ekki vita af þessu af því að þeir skammast sín fyrir að vera barðir af konu (skiljanlegt…) eða gerist þetta bara aldrei?
Það eiginlega hlýtur að hafa gerst einhverntíma.

Ég var svona að spá í þetta um daginn… mér finnst samt soldið eins og ég hafi lesið svipaðan kork áður. Eða dreymdi mig það?
Allt sagt með hálfri virðingu.