Ég var að reyna að senda inn tvær myndir á Ljósmyndir og þá kemur alltaf einhver error. Ég hef reynt að senda þessar myndir inn áður og það virkaði ekki þá heldur. Ég veit samt að þetta er ekki svona hjá öllum á ljósmyndaáhugamálinu, því það hafa komið inn nokkrar myndir síðan ég reyndi síðast.

Hvað er með þessar myndir mínar?? eru þær alltof stórar? Ég er búin að minnka þær niður í u.þ.b. 930 x 680 svo það er ekki vandamálið. Ein myndin er samt alveg heil 244 kb og hin er 353 kb. Það stendur samt ekkert um hvað mynd má vera mörg kb neinsstaðar.

Hvernig get ég minnkað stærðina á myndinni án þess að eyðileggja gæðin?
Allt sagt með hálfri virðingu.