Þannig var það nú að nóttina fyrir miðvikudaginn seinasta kom allt í einu fullt af skrifum eftir leifur2 sem var ekkert nema hreinn og beinn asnaskapur. Persónuárásir viðgengust, meðal annars var talað um “helvítis fucking rappara”, sem allir ættu að sjá að er ekki ég. Svona bull skrifa ég ekki. Fólk ætti að vita það.

http://www.folk.is/messiah/?pb=gestabok

Þarna virðist tjodalv hafa játað. Einnig skrifaði “ég” víst “tjodalv er svalastur!” eða eitthvað álíka. Samt þá neitar tjodalv þessu víst núna að það hafi verið hann. Líklegast einhver þroskaður vinur hans þá.

Allavega vil ég nöldra yfir því að hafa fengið bann fyrir þessa vitleysu sem þessi einhver skrifaði. Ég var á leiðinni í skólaferðalag á miðvikudagsmorguninn, vaknaði snemma og var alveg tilbúinn nokkuð fyrir. Þá ákvað ég að kíkja aðeins á huga, gá hvort ég hefði fengið ný skilaboð. Þar sé ég ein ný skilaboð. Fatta ég þá bara ekki að einhver hefur náð að giska á passwordið mitt, þannig að ég dríf mig beint í það að breyta því. Það gamla var “leifur”.

Það var þó lán í óláni að allan tímann sem ég var í banni var ég í skólaferðalagi og tók því ekkert eftir því.