Það er stór þörf fyrir nýja stjórnendur á /manga! Núverandi sjtórnendur eru aldrei inná! Það eru fullt af notendum sem eru að halda áhugamálinu uppi á korkunum, en stjórnendurnir láta ekki sjá sig.
Margir eru að tala um það á korkunum að þeir hafi verið búnir að senda inn margar myndir, og ekki einu sinni fengið póst um það hvort þeim væri hafnað eða ekki útaf því að stjórnednur eru aldrei inná! Núna hefur til dæmis sama myndin verið inná í meira en mánuð. Ég las einhverstaðar að annar stjórnandinn hafði ekki lengur greiðan aðgang að tölvu, en hinn stjórnandinn ætti allaveganna að vera virkur.
Mér finnst fáránlegt hve stjórnendur vanrækja áhugamálin sín. Ef þeir nenna ekki að sjá um þetta segja þeir upp og fá nýja stjórnendur, en láta ekki notendur manga áhugamálsins hanga á korkunum bara útaf því að þeir eru ekki nógu og virkir. Þetta er algert bull. Það á að fá nýja stjórnendur á /manga.
Dance, my puppets! Dance! *Insert creepy-beyond-believe laughter here*