Tókuð þið eftir því þegar myndin hjá Leifi2 breyttist skyndilega, eftir að hann hafði breytt henni og auglýst það? Hann hagaði sér líka mjög skringilega þann dag. Skoðið notendaupplýsingarnar hans:

http://www.hugi.is/daegurmal/bigboxes.php?box_type=userinfo&user=leifur2

Síðan fór magnus119 að hegða sér illa í dag, drullaði yfir allt og alla. Skrifar síðan kork um að einhver hafi komist að lykilorðinu hans. Kíkið á myndina hans:

http://www.hugi.is/daegurmal/bigboxes.php?box_type=userinfo&user=magnus119

Eruð þið að sjá það? Já, þeir eru með sömu mynd! Ég er viss um, kæru hugarar, að hér er ekki allt með felldu. Leifur2 skiptir ekki út mynd af sjálfum sér svo auðveldlega.

Leifur2 er því miður ekki heima hjá sér þessa stundina og getur hann því ekki staðfest að þetta hafi verið hakk, en ég get allaveganna sagt að ég er nokkuð viss: Það er hakkari á meðal vor.