Já, núna er ég búinn að kaupa mér miða á Foo Fighters og Queens Of The Stone Age, og mér hlakkar mjög mikið að fara á þessa tónleika!

En mig langar að nöldra útaf því að ég á bara miða á B svæði! Mér finnst ömurlegt að ég þurfi að kaupa miða á Duran Duran (sem að ég hef bara ALLS ENGAN áhuga á að sjá ) til þess að geta verði á A - svæði á Foo Fighters!
Ég veit að þetta er bara gert til að selja fleiri miða.. en mér finnst þetta samt ömurlegT! Svo er þetta náttúrulega líka asnalegt fyrir þá sem hafa bara áhuga á Duran Duran, ég meina.. þetta eru ekki næstum því líkar hljómsveitir…

Núna þarf ég semsagt að vera fyrir aftan fullt af fólki, meðal annars Duran Duran aðdáendum, vegna þess að ég á einfaldlega ekki nægan pening fyrir báðum tónleikunum..!