Jæja…..ég þarf að nöldra smá….ef þið nennið ekki að hlusta, vinsamlegast sleppið því að lesa ;)

Sko, ég er með einhvað rugl í munninnum og ég finn óbragð af öllu!
Er búin að tala við tannlæknir og allt en þetta er bara eitthvað ógeð…..finn ekki einu sinni gott bragð af nammi! :(

Svo er ég líka farin að vera svo þreytt að það liggur við að ég sofni bara við matarborðið :S

Svo eru það prófin……ég hef mig ekki í það að læra……alvarlegt mál þar.

Og……svo er heimurinn allur í ruglinu, mikil fíniefnaneysla á Akureyri…..ekki að hún sé eitthvað mikið minni annarsstaðar í heiminum!!

Jæja…þetta var smá svona tómt nöldur…..endilega deilið ykkar nöldri svo að ég hafi eitthvað að lesa annað en námsbækur ;D
"All we have to decide is what we do with the time that is given to us"