Ég sótti um adsl breytingu um mánaðarmótin og hef ekki fengið neitt svar. Svo sendi ég fyrirspurn fyrir 2 dögum og henni hefur ekki verið svarað heldur. Alltaf þegar ég hef sent fyrirspurn áður þá er svarað mjög fljótlega. Ég er að velta fyrir mér hvort það séu svo margir að sækja um breytingar í sambandi við heimasíma, gsm og net að það sé einhver stífla og þess vegna taki langan tíma að svara umsóknum. Eru fleiri sem eru að bíða svona eins og ég.