Djöfull finnst mér Subway smáralind sukkandi staður, alltaf þegar ég fer þarna fæ ég ógeðslega lélega þjónustu, það er eins og stelpurnar nenna engan vegin að afgreiða þig og svo er alltaf eins og maður sé bara fyrir þeim, alltaf druslulegt þarna og tvisvar sinnum sem að ég hef farið þangað hefur brauðið verið búið!!! HVERNIG GETUR BRAUÐIÐ VERIÐ BÚIÐ Á SUBWAY! Svo er ekkert sérstaklega erfitt að þrífa af ruslatunnunum því að það er alltaf eitthvað klístrað og ógeðslegt á þeim, gos og sósa og vibbi og ég bara kvíði því að henda í ruslið. Svo er oft geðveikt lítið að gera en samt þarf ég að bíða alveg jafn lengi og í kringlunni sem er alltaf mikið að gera eftir afgreiðslu þarna afþví að það er kannski bara ein stúlka að afgreiða á meðan hinar eru að kjafta saman. Svo fékk ég geðveikt litla barbique sósu í dag!!