Fyrir þónokkrum tíma hætti ég að lesa DV þar sem þetta blað er eintómt bull og ég skil ekki hvernig fólk getur lesið svona. Þetta er eins og að lesa leiðinlega skáldaða bók þar sem er logið upp á saklaust fólk.
Allavegana þá var ég staddur á kaffihúsi í mat og ætlaði að lesa eitthvað með matnum og tók þá nokkur DV blöð með á borðið.

Á baksíðunni sá ég að einhver stelpa úr Nylon (þessi ljóshærða með stóru augun) væri komin með kærasta… Sem var fertugur.
Ef ég væri í einhverri “boyband” hljómsveit og gæti fengið helling af stelpum þá mundi ég ekki velja vinkonu mömmu.
Reyndar er hún ekki það aðlaðandi þannig að þetta er ekki skrítið. Örugglega ágætis stelpa samt.
Er þetta satt?