Bévítans próf! Þetta gerir ekkert annað fyrir mann en að skemma eitthvað fyrir manni. Maður lærir eins og motherfucker seinasta daginn fyrir próf.. nánar tiltekið 03:30 og heldur að maður eigi að fara í próf 08:15 svo vaknar maður svona 06:40.. fer í sturtu og fær sér að borða og fer svo að læra þangað til klukkan er orðinn 07:40 þá er farið í 10-11 keypt sér coke til að drekka í prófinu og svo er farið uppí skóla. Svo les maður á tilkynningar töfluna og sér að prófið sitt er ekki fyrr en 14:00! og svo er ég með coke í töskunni minni sem er að verða volgara og volgara með hverri sekúndu sem lýður ;/

ANDSKOTANS PRÓF ;( - annars var þetta bara mitt nöldur eins og er.. kemst yfir þetta um leið og ég fæ mér sopa af cokeinu. Eða að minnsta kosti búinn að koma því inní seif pleis.. nánar tiltekið magan á mér eða ískápinn.