b2 dæmið, getiði plís plís plís fært þetta fyrir neðan heitar umræður? Ömurlegt að sjá þetta þarna!

*Ég veit að það er alveg örugglega nokkrir korkar búnir að koma til að nöldra um þetta en ég hef því miður ekki stundað huga mikið síðustu daga og veit það ekkert (fyrir utan einn og þá sá ég að einhver svaraði “Hvað ætliði að gera marga svona korka?!?”*

Og svona til að bæta við finnst mér þetta eyðing á plássi.. Ef ég vil skoða svona hluti fer ég á hinar billjón síðurnar sem eru með svona, sem ég geri ekki útaf mér finnst þetta tilgangslaust og leiðinlegt :(