Þetta með tollinn!

Þegar maður fer í gegnum tollinn á flugvöllum, þá pípar á naglaklippur og fleira!

Já ok, það er hægt að drepa með naglaklippum en MJÖG erfitt, en ég meina maður hefur ekki skipulagt að drepa einhverja manneskju með NAGLAKLIPPUM! og þar sem það tekur svo mikinn tíma, þá hlítur einhver að sjá það! Það er ekki eins og maður komist upp með að drepa fólk í fríhöfninni eða flugvélinni með naglaklippum, svo er svo létt að verja sig, þó að maður meiði sig!!!

Maður fer í frí, en vill samt klippa á sér neglurnar, tekur þær með, þær teknar af manni, svo fer maður í fríhöfnina og þá er hægt að kaupa þær!!! Hver er tilgangurinn að taka af manni naglaklippurnar ef þær eru seldar í fríhöfninni???

Svo var kennarinn minn að segja okkur frá því þegar hann fór í gegnum tollinn, að hann sá þegar naglaklippurnar voru teknar af einhverri konu en ekki 2 flugbeittir prjónar sem voru í hárinu á annari, miklu léttara að drepa með þeim!!!

Þetta er rugl!