Ég hef aldrei lesið eins mikla þvælu og bull í mörg mörg ár þegar ég las að Davíð Smári vildi fá bætur fyrir að hafa tekið þátt í Idol. Aðallega út af því að hann vissi að hann yrði að taka þátt í þessu ef hann myndi komast áfram (og ef hann hefði getað hætt, af hverju gerði hann það þá ekki?). Þetta er bara svo mikið bull og vitleysa að hálfa væri nóg. Ef hann hefði unnið Idolið hefði hann þá farið að væla eins og aumingi að hann hefði getað fengið millu á Kárahnjúkum? Nei alveg örugglega ekki, þetta er bara tapsárt gimp sem á ekkert skilið að fá milljón fyrir að leika sér í góðum fíling og syngja í sjónvarpinu,

Annar skemmtilegur punktur sem er hægt að nefna er að núna hafa um 10 seríur af Survivor verið sýndar í sjónvarpi í Bandaríkjunum og ég hef ALDREI heyrt af fólki sem var í 3. sæti (þeas ekki fengið nein peningaverðlaun) sem hafa farið að væla yfir því að þeir hefðu getað verið að vinna einhverja skítavinnu og vilja fá bætur því þeir unnu ekkert!
Og það er meira að segja í Bandaríkjunum, landi vælukjóa og aumingja!!!

Segi bara úff!