Hafiði lent í því að fá fáránlegar tryggingabætur? Það er nefnilega það allra skemmtilegasta sem þú getur lent í…

Ég (mamma og pabbi) lenti í því að talvan sem hafði þjónað okkur sem nettalva í 5 og hálft ár eyðilagðist…því að það sló eldingu niður í hana…og við vorum víst vel tryggð fyrir því…og fengum 95.000 kr fyrir hana…

Síðan fórum við og keyptum glænýja tölvu (bara tölvu…hitt virkaði alveg ennþá…) á 70.000 krónur…það var bara stuð…

Ef þið hafið ekki tryggt tölvuna ykkar fyrir því að eldingu slái niðrí hana…gerið það á núinu skoh…það á eftir að koma sér vel…kannski :)

Hafið þið lent í e-u jafn…fáránlegu?