ég hef sennilega aldrei orðið jafn pirraður á einni manneskju og ég var á háværu stelpunni sem var alltaf að grípa fram í fyrir Eddie Izzard rétt áðan.. það voru ekki margar hömlur sem héldu mér frá því að henda henni fram yfir svalirnar á Broadway.

Hvað varð um tillitsemi við aðra?

Hvað varð um að geta tekið hinti um að hætta eða drulla sér út?

Og hversu illa þarf maður að vera staddur til að halda áfram að góla eins og breima köttur eftir að grínistinn dissar mann og allir standa upp og klappa til að sýna samþykki sitt?