Er einhver annar sem þolir ekki þennann sjónvarpsþátt? Þetta er orðið svo ömurlega leiðinlegt og langdregið (reyndar hefur það alltaf verið) og ekkert fyndið. Ég einn af fyrstu þáttunum… Fannst hann ömurlegur, horfði svo aftur núna til að gá hvort þeir hefði skánað, hann var líka ömurlegur. Mig langar samt að sjá þegar sveppi þarf að láta gata á sér geirvörtuna (jájá hlæið bara) en sleppi því þar sem þetta verður örugglega hálftíma væl og svo hlátur, væl og hlátur en götunin tekur svona 10 sek.

Og hvað er þetta “Fríkað úti” ???? “Ú núna ætlum við að taka viðtal við einhvern á meðan við káfum á sjálfum okkur, td. snertum á OKKUR brjóstin og svona”
Ok… Ef að einhver lítill feitur gaur með krullur, sem talar lélega íslensku og er að káfa á sjálfum sér og er að þykjast taka viðtal… Munduð þið ekki fatta strax að þetta væri bull?

Djöfull væri samt fínt að fá pening fyrir að vera með “íþróttarmót” og fara í kapphlaup við pétur niður stigann og láta það taka kortér af þættinum og koma með brandara um hvað pétur er í lélegu formi og auddi er mikil væluskjóða.
Og að fá borgað fyrir að spurja Eddie Izzard nokkura leiðinlegra spurninga.
Fá borgað fyrir að fá gat í geirvörtuna og taka svo bara hringinn úr þegar þetta er allt búið.
Fá borgað fyrir að fara í “kapphlaupið litla” og húkka far niðrí bæ og dansa á torginu með ís á hausnum.
Fá borgað fyrir að vera “krúttlegur og barnalegur” og koma með 2-3 skot í hverjum þætti.
Fá borgað fyrir að herma eftir öðrum þáttum, nema gera það miklu lélegra (td. jackass þegar þeir skutu flugeldum inní rassgatið á steve O, nema “strákarnir” voru það sniðugir að láta eið smára sparka bollta í sig, sem er jú vont en þeir fá frítt til útlanda og á kaupi) eða herma eftir “I bet you will”… Hvað er svosem svona hræðilegt við að sprengja kókómjólk með hausnum fyrir 20 þúsund kall? Þetta væri fyndið ef þeir væru að sprengja kókdós fyrir 5 þúsund kall.
Eða að fá borgað fyrir að vera í öðrum hverjum þætti og sitja fyrir aftan litlar smábarnatrommur með einhverja stæla “újé i'm da drummaaahhh in da houuusahh!” og þá fara allar litlu stelpurnar að hlæja: “úú pétur er svo fyndinn tíhíhíhíhíhí”
Eða að fá borgað fyrir að fá einhvern tónlistarmann til að syngja fyrir sig og syngja með eins og athygglissjúkt fífl.


Ég mundi gera þetta allt fyrir pening þannig að ég er ekki að vera með leiðindi útí sveppa, audda og pétur, en þetta er orðið svo leiðinlegt og mig langar að horfa á eitthvað annað en strákana á kvöldin, það er alveg hægt að troða einhverjum góðum skemmtilegum þætti þarna inn.

Þeir gætu svosem verið með barnatímann þegar “Afi” hættir… En ég mundi aldrei nenna að hlusta á barnið mitt eftir að það er búið að horfa á þá í nokkra daga með einhverja pirrandi frasa, svosem “crazy in da brainhouse” ofl.