Ég er ekki viss hvort þetta flokkast með tilgangslausum korkum…held að það gæti verið…en þar sem ég er ekki að kvarta undan tákulda(mér er reyndar bara frekar hlýtt á tánum í augnablikinu :D) þá ætla ég bara að senda þennan kork inn og vona að ég verði ekki bönnuð…en jæja…

Veit einhver hvort það verða til Strumpaegg í ár?
Í fyrra voru ekki og mig minnir að það hafi verið sagt á heimasíðu nóa síriusar að þau væru hætt tímabundið… Eru þau til núna?

Mér finnst allaveg grautfúlt ef að þau eru hætt =/ ég er löngu hætt að leika mér með strumpana en það tilheyrir samt einhvern megin páskunum að velja sér strump =/ og þessir Púkar er ekkert flottir…þeir eru bara ljótir… =/

Finnst engum öðrum þetta vera grautfúlt?…

(Veit einhver hvort maður getur keypt sér strumpa einhverstaðar? :P )



Og veit einhver…er mikið mál að búa til sitt eigið páskaegg? :Þ