Ok byrjum bara á byrjununni

Í gær sleppi ég seinni helmingnum af badminton æfingunni minni (keppnisflokksæfing) og fer á undankeppni fyrir billjard mót samfés þar sem það hafði verið skráð 15 keppendur hjá okkur en það mættu bara þrír þannig að við komumst allir áfram en ef ég hefi mætt 40 min seinna hefði ég líka komist áfram því það var verið að panta miða fyrir samfés ballið svo ég hefði getað haldið áfram á æfingunni…

Síðan svitnaði ég svo mikið á æfingunni að ég fór í sturtu eftir sturtuna fattaði ég að ég hafði engin auka föt þannig að sokka og nærbuxnalaus hleyp ég heim og fékk einhvern skít úr skónum sem fór undir neglurnar á mér þannig að núna get ég varla lappað útaf því það kom smá sýking sem er að batna núna…

Síðan í kvöld fattaði ég að ég átti eftir að gera heimavinnu byrja um leið og ég er búin með fyrsta dæmið sem var auðvelt enda engin heima og ég gat einbeitt mér að heimavinnunni og þá koma mamma og pabbi heim og skipa mér að gera helling af hlutum sem ég hefði getað gert eftir skóla en þau gleymdu að segja mér frá því um leið og ég er búin með það þá fer ég aftur að læra enn og aftur allger þögn því mamma og pabbi eru úti með hundinn síðan koma þau inn eftir 2 dæmi og fara að steikja eitthvað kjöt og og steikingarhljóðið var eitthvað svo yfirþyrmandi hátt þannig að ég gat ekki einbeitt mér svo ég reyndi meira en núna er ég bara dauður í hausnum með hausverk og get ekki haldið neinni einbeitingu og þarf ennþá að gera 5 bls af heimavinnu fyrir morgundaginn!…

og núna er verið að kalla á mig til að taka hundin vitandi að ég get ekki labbað! og btw fékk ég ekkert að ráða hvort við fengum þennan hund sem við fengum fullvaxin! hvar er skemmtunin í því? ég hef alltaf átt hund sem hlýðir enskum skipunum eins og sitt come og svona en núna er það sestu og komdu kall! djísus kræst hvað ég hata að skipa þessum trega hundi fyrir!

Auk þess er á morgun stuttmyndagerð uppáhalds fagið mitt og við eigum að gera tónlistarmyndband ákvaðum að taka queen lag (BIcycle race) en nei gaur úr mínum hópi sem skrópaði í seinasta tíma vill ekki hafa það við erum búnir að gera alla vinnuna! handrit hvar við gerum það myndavéla sjónarhorn og hvað ekki en það eru reglur í stuttmyndagerð að hópurinn verður að vera einróma um niðurstöður að hlutum “##$%&/(”#$%&/!/"%!!!

ok nóg komið að nöldri frá mér endilega segið mér frá því hversu ömurlegt líf ykkar er sem stendur…