Alltaf þegar ég sé korka um það hvað Reykdal er illur, vondur, grimmur eða leiðnlegur, þá hlæ ég.

Hugi.is er ekki einhver sjálfsögð réttindi, heldur fríðindi.

Það er ekki ykkar *réttur* að fá að hafa einhverja spjallsíðu þar sem þið getið talað við annað fólk um allskonar kjaftæði, heldur er þetta afkvæmi heljarinnar vinnu hjá JReykdal, Fluffster og fleirum sem að þessu hafa staðið.

Það sem hann JR er að gera með því að banna allt þetta fólk sem er bara að fíflast, er að hreinsa huga.
Þetta fólk sem er bara með kjaftæði hefur engann rétt á að vera hérna.

Er ég sá eini sem man eftir gamla góða huga þegar það voru ekki 200 tilgangslausir póstar á dag á forsíðunni um svengd og tákulda?

Hættið þessu djöfulsins kjaftæði, og þakkið fyrir það sem þið hafið, og gerið ykkar í báráttunni fyrir því að halda því góðu!

Kv. Duff