Góðann daginn.
Þriðjudaginn 15 feb. var ég bannaður af huga og að ástæðulausu finnst mér.
Kíkjum aðeins á skilmálann…

Skilmáli huga.is
1. Skilmálar þessir gilda fyrir alla notkun á Huga.is í hverri mynd sem hún kann að vera. Þeir kunna að vera endurskoðaðir án fyrirvara ef þörf krefur.
2. Ef skilmálar þessir eru brotnir getur það valdið tafarlausu banni án fyrirvara.
3. Hugi.is mun eftir fremsta megni tryggja öryggi og trúnað viðskiptavina og þeirra gagna sem þeir kunna að geyma á Huga.is.
4. Hugi.is ber þó hvorki ábyrgð á tjóni sem kann að orsakast af notkun né ef ekki er hægt að nota þjónustuna af einhverjum ástæðum. Hugi.is ber ekki ábyrgð á
gögnum sem kunna að tapast eða skemmast sem geymd eru á búnaði Huga.is. Hugi.is ber ekki ábyrgð á tjóni sem þriðji aðili veldur, til dæmis með skemmdum á efni sem Hugi.is geymir á búnaði sínum.
5. Haga skal notkun í samræmi við góða siði og umgengnisreglur sem almennt eru viðurkenndar á Internetinu. Ærumeiðingar, tilhæfulausar ásakanir og árásir á aðra notendur eru ekki liðnar. Þursar(e. “Trolls”), þ.e.a.s. þeir sem hafa það eina markmið að koma af stað rifrildum, eru ekki umbornir. Stjórnendur áhugamála og yfirstjórnendur huga meta það hverju sinni hvort viðkomandi notandi sé að þursast eður ei.
6. Óheimilt er að nota aðgang annarra. Þar með talið er óheimilt að lána óviðkomandi aðgangsorð, nota kennitölu annarra, reyna að komast yfir aðgangs- og lykilorð annarra eða nota á annan hátt gögn eða samskipti sem tilheyra öðrum.
7. Óheimilt er að nota aðganginn til að að brjótast eða að reyna að brjótast inn í tölvukerfi eða tölvunet annarra eða til að valda tjóni á búnaði eða gögnum. Hugi.is ber ekki ábyrgð á því tjóni sem slíkt kann að valda.
8. Óheimilt er að trufla samskipti eða valda óeðlilegu álagi á tengingum annarra.
9. Óumbeðnar fjöldasendingar eru með öllu óheimilar.
10. Fylgja skal þeim reglum sem gilda á spjallrásum (IRC). Notkun þeirra er þó á eigin ábyrgð.
11. Óheimilt er að birta efni á Huga (þar með talið kasmír síðum) sem ekki er í samræmi við lög og reglur eða almennt velsæmi, þar með talið ærumeiðandi efni.
12 .Hugi.is áskilur sér rétt til að ákvarða hvort tiltekin samskipti teljast brjóta í bága við þessar reglur
1. Ekkert að segja við 2 fyrstu
2.
3. Ég man ekki eftir því að hafa verið einhver öryggishætta.
4. Ekkert að segja við þessu
5. Ég man ekki eftir því að hafa verið að tröllast neitt.
6. Ég var ekki að því.
7. Ég var allavega ekki að brjótast inní eitt eða neitt.
8. Ekki var ég að því heldur.
9. Ég man heldur ekki eftir því að ég hafi verið að spamma.
10.Ég fylgi þeim reglum náttúrulega.
11. Man ekki eftir að hafa gert neitt slíkt.
12 Hef fulla virðingu fyrir þessari reglu en ég er bara svolítið ósáttur.

Svo kemur svolítið skemtilegt fram loksins… ( http://www.hugi.is/forsida/announcements.php?page=view&contentId=1960919 )

JReykdal
Okkur er sama hvort ykkur sé kalt, hvað fer í taugarnar á ykkur…

Allir nöldurskorkar eru um hvað fer í taugana á fólki (Þá er ég ekki að tala um mér langar í köku ) eða mér er kallt á tánum korka.) En fyrst maður má ekki skrifa nöldurskorka án hættu á að verða bannaður þá legg ég nú bara til að sá korkur verði lagður niður. Er hægt að nöldra yfir einhverju sem fer ekki í taugarnar á manni? Ég bara spyr….
5