Já þetta mun ekki vera korkum það að mér sé kalt á tánum eða að mér leiðist heldur er þetta nöldur korkur á huga.is og þá ætla ég mér að nöldra um huga.is!

Ég var að skrifa svar við korki (póst) og las hann svo yfir og sá að þetta var algjörlega tilgangslaust hjá mér útaf aðalatriðið vantaði, þannig að ég leiðrétti mig og fékk sem sagt
Svar hefur borist… sugnaks 16. febrúar 2005 - 18:28:33
Mér fannst þetta ekkert alltof sniðugt og þar sem að ég var að koma frá tannlækninum og er pirruð þá pirraðist ég ennþá meira og tók þá eftir að ég hafði gert enn ein mistök í þessu og þar sem að ég hata að gera villur þegar ég tek eftir þeim þá varð ég að laga hana og þá fékk ég aftur
Svar hefur borist… sugnaks 16. febrúar 2005 - 18:29:39

Tilgangur nöldurs er sem sagt það að ég hata það á huga að það sé ekki hægt að gera edit eins og annars staðar - á flestum stöðum sem ég veit um!
Það er fátt leiðinlegra en að fá skilaboð frá sjálfum sér.