Voðalegt vanþakklæti er þetta. Þú gerir þér vonandi grein fyrir því að það kostar milljarða á ári að reka þennan blessaða sæstreng og Hive á ekkert í honum (nema að OgVodafone sé búið að kaupa IP-Fjarskipti, þá eiga þeir tæknilega hlut í honum), og kemur þar af leiðandi vel útúr þeim málum. Síminn og OgVodafone eiga hins vegar hlut í honum og þurfa að borga allan pakkan.
Svo býður tenging hjá Símanum með 4 GB downloadi uppá svo gott sem frítt download. Það er bara orðað kjánalega.
En þú býst væntanlega við því að þessi fyrirtæki séu handabendar djöfulsins og með þessu skrefi séu þau einungis að reyna að gera útaf við Hive. Svo þegar þau eru búin að því taka þau síðan þetta verðþak í burtu. Ég held ekki. Þetta er ekkert nema skref í rétta átt.