Jæja, síðasta sólarhringinn hef ég verið að fara upp á kannt við það sem margir kalla “gelgjur”. En já, ég ætla að nöldra yfir svörunum sem þessar svo kölluðu gelgjur hafa látið út úr sér

Ég ætla að fara yfir nokkur dæmi:

Ég, Roadrunner, skrifa: “Nobody cares”

og þá fæ ég svar frá aðila sem kallar sig “klassi”: - “Síðan hvenær ert Þú nobody?”

Ég hef aðeins eitt af segja: Ha?!??!?!

Mjög lélegt svar frá þessari manneskju.


Jæja eitt af næstu svörum mínum var: Roadrunner skrifaði - “Við hverju á ég svo sem að búast, 90% af þessu liði hérna er nautheimskt, þroskaheft eða gelgjur og þá ert þú talinn með.”

Og þá fékk ég þetta glæsilega svar frá manneskju sem kallar sig summergelg.

Svarið frá Summergelg: “LOL….ég er ekki gelgja…haha svo mér er ekki kalt bara ég kemst ekki á ísó…! Þú ert sjálf bara fkn sorgleg sko…!! =/”

Eins og þið sjáið þá er hún að reyna að neita því að hún sé gelgja. Ég ætla bara að benda á nafnið “SummerGELG”. Þið sjáið líka í svarinu hennar orð eins og “LOL” og “fkn”. Hún skrifaði líka önnur skemmtileg orð eins og: “=)”, “ekki rass”, “fokk it”, “ =D má ég það ?! *-)” - Ég legg mikla áherslu á broskallana.

Allir menn með vit sjá að þessi manneskja er að drepast úr gelgju, en ég ætla að láta fólk dæma það sjálft.

Næst fékk ég svar frá manni sem kallar sig “gamlikallin”. Það fyrsta sem ég tók eftir var nafnið hans og hann gat ekki skrifað það rétt þannig annar hálfvitinn var kominn, hugsaði ég með mér.

Svarið frá gamlikallin hljómaði svona: “hugsaðu kanski áður enn þú skrifar umm fólk sem þú þekkir ekki shit.”

Og síðan skrifaði hann: “STFU ógeð”

Ég ætla að benda á það að gamlikallin þekkir mig ekki neitt.

Þarna skaut hann sig í fótinn. Kaldhæðnin, ó kaldhæðnin. Ef þið skoðið orðabók og leitið upp á orðinu “Hræsnari” þá sjáið þig mynd af gamlikallin. En ég nennti ekki að eyða meiri tíma í svona heilalaust fólk eins og gamlikallin þannig ég gaf honum bara eitt lítið svar til baka, sem var að sjálfsögðu, sannleikurinn.

Svo kom eitt svar frá manni sem heitir “Abyzz”.
Ég hef ekkert út á svar hans að segja en svar hans hljómaði svona: “Ég bíð spenntur eftir svari frá roadrunner
Það er svo fyndið að sjá hann/hana valta yfir ykkur”

Ekkert að þessu svari en “klassi” svaraði Abyzz með þessum orðum: “Haha ertu virkilega að segja mér að þér finnist hann vera að valta yfir okkur ?
Má ég spurja er ekki tjáningarfrelsi hérna ?
Ef korkarnir fara svona í ykkur af hverju látið þið ekki bara banna svona bull ?
Ha segið mér það endilega ?
Þetta er svo mikið rugl, eff við viljum nöldra þá nöldrum við bara. Það kemur ykkur bara ekekrt við, þið þurfið ekki einu sinni að lesa þetta fyrst þetta fer svona í ykkur.”


Er ég sá eini sem sér örvæntingu og hræðslu í þessu svari? Maðurinn “klassi” var orðinn svo stressaður að hann byrjaði að bulla nokkrar línur og hann byrjaði að endurtaka sig. En það er náttúrulega greinilegt að ég valtaði yfir þetta fólk með mínum svörum og svörin sem ég fékk til baka, hljómuðu eins og svör frá öpum. Því þessi svör voru SVO léleg að þetta var einum of auðvelt fyrir mig.

Þið getið kallað mig “fkn sorglegan”, “ógeð” eða hvað sem er, en það breytir ekki þeirri staðreynd að þið eruð hálfvitar.

En núna bíð ég spenntur eftir svörum frá þessum aðilum, og mörgum öðrum, og mig hlakkar til að sjá hvernig þau svör hljóma.

Þið hafið ekkert í mig. Þegar þið eruð komin uppúr gelgjunni reynið þá að rífast við mig. In other words: Hættið að eyða tíma mínum með svona lélegum svörum, því ég hef einfaldlega ekki tíma fyrir þetta rugl.

Do not mess with me or I'll strike you down thousand times harder.