Ég veit ekki hvort þetta sé neitt voðalega gott en ég er orðinn mjög mjög kóksjúkur núna. Ég fæ mér minnst eina dós á dag. Þetta er allt vegna þess að kókið í kókvélinni í skólanum mínum er svo ótrúlega gott og maður getur bara ekki staðist það….það er ískallt og *slef*…..svo mikið bragð af því….og ég elska það algjörlega en þetta er samt vont fyrir tennurnar!!
Á ég að fara í einhverskonar meðferð eða bara að berjast við þetta eða á ég bara að halda þessu áfram og sanna að ég var að komast í tölvu og kókistafélagið í gær??

Kv. StingerS