Þar sem allir eru að “nöldra” eða réttara sagt skrifa niður sína mestu galla í augnablikinu. Sem ég tel ekki vera nöldur, þá ætla ég bara líka að herma.
Sko..

1.Ég á eina vinkonu og einn kærasta ! Vinkona mín á líka kærasta þannig ég hitti hana voða sjaldan eiginlega bara í skólanum. Kærasti minn er í vinnu þannig ég er alltaf ein ! =( (mjög oft allavega)

2.Ég er búin að fitna rosalega mikið en ég nenni ekki að hreyfa mig af því ég á enga vini þá þarf ég að fara ein!

3.Ég er ógeðslega hallærisleg týpa, er alltaf að reyna vera flott, en það misheppnast (kann ekki að velja föt sem passa saman, kann ekki að mála mig)

4.Ég er með feimnustu manneskjum á jarðríki ! (útskýrir kannski þessa einu vinkonu)

5.Mig langar í pening ! (kaupa bíl, flytja að heiman, fara til útlanda)

Hver vill hjálpa mér að verða að manneskju td. með því að vera vinur minn… :'(