Hvernig væri að hugarar tækju sig saman í því að safna upplýsingum um þá stjórnendur sem eru dauðir eða ekki að gera neitt fyrir það áhugamál sem hann/hún er stjórnandi á…

Það myndi kannski verða til þess að vefstjóri/JReykdal tæki eftir því að það þarf að sópa út lélegum stjórnendum til að sum áhugamál lifi og séu virk…

Endilega komið með nöfnin á “ykkar” áhugamáli og nefnið þann stjórnanda sem stendur sig allra verst þar - en komið endilega líka með þá stjórnendur sem eru sannarlega góðir og eru að gera góða hluti.

Ég vil fyrir mína parta segja að ég sæki mest 3 áhugamál: 1. Kynlíf - 2. Deigluna og 3. Smásögur.

1. Kynlíf Stjórnandi: HJARTA.(nokkrir óvirkir).
Sterkur og virkur stjórnandi sem vinnur vel og heldur vel um áhugamálið. Hreinsar reglulega til og sér til að allir komist að með greinar, myndir, korka og svo frv. Til fyrirmyndar!

2. Deiglan. Stjórnendur: BessiB og Xavier.
Virðast sterkir og lifandi stjórnendur. Mikil hreyfing á áhugamálinu - enda örugglega með því stærsta á huga. Halda vel á spöðunum og halda áhugamálinu bullandi lifandi og maður sér alltaf eitthvað nýtt þar. Til fyrirmyndar! Enda nennir maður að skrifa þangað greinar einstaka sinnum.

3. Smásögur. Stjórnandi: Abigel.
Steindauður stjórnandi sem ekki á heima á áhugamálinu! Ég þarf ekki að segja meira. Enda kem ég ekki til með að koma þar inn á meðan þessi stjórnandi er hafður steindauður þar.
—————————
Önnur áhugamál þekki ég minna en mér sýnist nokkur áhugamál vera lifandi og virk. Hvað er þitt uppáhalds áhugamál og hver er að standa sig best sem stjórnandi þar? Hver er óvirkur þar og hver er alls ekki að gera neitt?

Endilega komið með ykkar álit um stjórnendur - ef þið þorið. Varla verðum við bönnuð fyrir að koma með skoðanir okkar á opnum korki. En ef þið þorið ekki að koma með skoðun ykkar hér megið þið vel senda mér skilaboð og ég tek saman eftir helgina hvaða áhugamál virðast vera með lélegustu stjórnendurna - og reyni með einhverjum hætti að fá háttvirtan vefstjóra *sleikj* til að taka á móti niðurstöðunni og skoða hana! Don´t be afraid!