Mér finnst svo gaman að lenda í svona könnunum. Mér finnst alltaf eins og ég sé eins af þessum útvöldu. :)
Lenti nefninlega svo skemmtilega í því einu sinni að vera úti í hesthúsi og fá hringingu frá þeim. Ég kvaðst ekki geta talað við þá akkúrat þá, en að konan mætti alveg hringja aftur seinna - sem hún og gerði!
Fyndnast finnst mér þó þegar fólkið talar mjög háfleygt og sposkt þegar það er að bera fram spurningarnar en breytist svo í allsvakalegar gribbur þegar þau þurfa að útskýra eitthvað. Og þegar spurningarnar snerta veikar taugar hjá fólki, eins og ef það myndi hringja í einhvern sextugann, hreinann svein/meyju, og spyrja hversu oft í viku það stundar kynlíf. :D