Þetta heldur áfram og víst að ég var sigurvegari spurningakeppni nr. 2 er það skilda mín að halda áfram en víst að Pardox stal spurningakeppni nr. 3 af mér (No big deal, bara fyndið :D) þarf ég að skíra þetta spurningakeppni nr. 4.

Reglur:
Þið sendið mér svörin sem privat póst. Alls ekki skrifa svörin hér fyrir neðan!!.
Sá sem er fyrstur að svara öllu rétt vinnur keppnina og á þá að halda þessu áfram og koma með næstu spurningakeppnina. Tíminn rennur út klukkan 24:00 í nótt.

Ég ákvað líka að hafa þetta aðeins erfiðara en hina spurningakeppnina mína og fara svona aðeins í áttina að spurningakeppninni hans Dagfara og Pardox en samt ekki alveg jafn erfitt þannig að það skiptir líka máli að vera fljótur…

1. Argentína keppti í gær á heimsmeistaramótinu í Handbolta!!
a) Við hverja??
b) Hver vann??

2. Milli hvaða fjögura landa siglir Norrænan??

3. Hvað er hæsta fjallið á Íslandi sem er ekki jökull??

4. Hver er höfuðborg Ástralíu??

5. Hvar er gula fljótið??

6. Hvar er Khao Lak??

7. Afhverju spilar Henrik Larsson ekki með Barcelona akkurat núna??

8. Hvað þýðir Ítalska orðið “Vita”??

9. Hvað er 3 í öðru veldi sinnum 8-4??

10. Flokkaðu þessar eyjar eftir stærð!! Sú stærsta fyrst!!

Færeyjar
Kúba
Madagaskar
Ísland

Gangi ykkur vel og munið að senda þetta sem privat skilaboð en ekki hér fyrir neðan!!

Kv. StingerS