Verð að segja að mér þótti frekar fyndið þegar einhver sendi inn kork hérna um daginn þar sem hann var að kvarta yfir hvað íslenska sé leiðinlegt og tilgangslaust fag og margir tóku undir það. Ef fólk ætlar í alvöru að halda því fram að íslenskukennsla sé tilgangslaus ætti það að sýna fram á það með því að nota rétt mál og góða stafsetninu hér inni. Það er ótrúlegt hvað sumir eru illa máli farnir hér inni og ég hef séð mörg dæmi um að fólk noti orð vitlaust og stundum er erfitt að skilja hvað manneskjan er að reyna að segja. Önnur dæmi eru t.d. að fólk sé með orð í vitlausum kynjum, vitlausa málfræði og ég ætla ekki einu sinni að byrja á stafsetningunni.
Af því sem ég hef séð veitir mörgum Hugurum ekki af því að bæta við sig nokkrum aukatímum í íslensku. Það ætti að vera lágmarkskrafa að fólk geti skilið það sem skrifað er hér inni.
www.blog.central.is/runin