Jæja þá er komið að enn einum af þessum sívinsælu hvaða lag þráður.

Þetta lag sem mig langar að vita hvað heitir heyrði ég í morgun á XFM. Ég veit eftirfarandi um þetta lag:

*Lagið var spilað á XFM 91,9 í morgun ég man ekki nákvæmlega kl. hvað en það hefur verið á milli 07:55 og 08:05.

*Þetta er rokklag. Lagið er væntanlega 20 ára gamalt eða meira. Alveg sona léttur Led Zeppilin eða einhver svoleiðis fílingur í þessu.

Veit einhver um hvaða lag ég er að tala?