Hæ öll.
Núna þegar snjór er yfir öllu er tímabært að fara og gefa vinum okkar smáfuglunum.
Ég hef gefið þessum greyjum reglulega í vetur og það er mjög gaman að fylgjast með þeim gæða sér á matnum.Ég hef keypt korn sem heitir snjókorn og fæst t.d. í Blómavali og örugglega víðar og hef ég brætt smjörva eða álíka fitu í skál í örbylgjuni(því þeir þurfa fitu) og bætt korninu út í og leyft því að standa smá stund til að það drekki fituna í sig og gefið þeim svo.Þeir eru vitlausir í þetta og í morgun var Krummi kominn í hópinn líka.
Verði þeim og ykkur að góðu.
Kv-prien.