Ég er gjörsamlega kominn með gubbuna uppí háls af þessum eiturhressu útvarps mönnum á Fm957
hvað eru þeir að éta á morgnana sem ég fæ ekki.
Þegar ég er að vakna, sem tekur oftast 3 tíma, er ég mjög morgunfúll, yfirleitt vakna ég rétt fyrir vinnu stekk útí bíl og negli af stað. Eftir að vera komin hálfa leið í vinnuna heyri ég mér til mikillar morgun ógleði að konan hafi skilið eftir útvarpið á fm957, ég er ekkert sérlega fljótfatta svona snemma á morgnana sjáðu til.
Er ekki einhver speki um það að ef einhverjum sem þér líkar ekki við er í vondu skapi sjáðu þá til þess að hann viti í hversu góðu skapi þú ert í.
Ég kís allavegana að hlusta á einhvern sem er á sama róli og ég svona nývaknaður á morgnana.
annars væri ég alveg til í að prufa cherios hringina sem þessir hnakkar eru að smjatta á á morgnana