Guð minn góður!!!!!!!!!! Fíkniefni fundust í bílum á Selfossi. “Breaking news” ;)

Nei í alvöru talað, leiðinlegt þegar það kemur svona gúrkutíð í fjölmiðlum.


Mbl.is…

Lögreglan á Selfossi fann ætluð fíkniefni í fórum farþega í tveimur bílum sem stöðvaðir voru við almennt umferðareftirlit í bænum í nótt.

Er talið að a.m.k. í öðru tilvikinu hafi efnin sem fundust verið tóbaksblandað hass.

Voru viðkomandi færðir í fangageymslur - einn vegna annars málsins og þrír vegna hins - en flestum hefur verið sleppt eftir yfirheyrslur. Að sögn lögreglu er í öllum tilvikum um að ræða ungt fólk, um og undir tvítugu.