Kæru hugarar. Síðastliðna viku hafið þið öll gengist undir tilraun sem þið vissuð ekki einu sinni að. Markmið mitt var að kanna hversu margir yrðu nett brjálaðir ef ég færi að gera einhvern fáranlegan hlut, t.d. eins og að pósta Orðum dagsins úr Mogganum hingað inn á hverjum degi.

Tilgáta mín var sú að það væru vel margir sem myndu pirra sig á þessu, en það myndu samt næstum alltaf vera þeir sömu sem væru að kvarta.

Niðurstaðan varð reyndar sú að á fyrsta degi fékk ég ekkert skítkast. bara hluti á borð við:

rollan6
þvílíkur viskubrunnur sirja:D
og:
gaddavir
Mig langar ekkert í upplok. d;o)

Annan daginn fór reyndar versnandi, því þá fóru að heyrast hlutir eins og:

BhZZ
Hefuru ekkert að gera?:P
og:
Damphir
Þetta á heima á sorp áhugamálinu.

Jaaá, og versnandi fór það enn, því að þegar 7. dagurinn var liðinn var ég búin að fá comment eins og:

Hansol
HÆTTU AÐ PÓSTA ÞESSU MAÐUR S'ER ÞETTA 'A MBL.IS OR SUM BARA HÆTTU þú ert að þessu bara til að FÁ STIG !! GMG LOL ROFL ROFLMAO OMG HAX !
og:
Hansol
GMG JReykdal PLZ banna þetta kvikindi !

En reydnar kom í ljós að sumir hugarar tóku ástfóstri við orðum dagsins og mátti sjá hluti eins og:

stinkytoe
Þetta veitir hlýju í vetrarkuldanum.
Rommel187
ah.. að lesa orð dagsins á huga er svona “highlight of the day!” heh
Kutter
Eftir að ég les orð dagsins verð ég bara nýr maður! [...]
Gnome2
Orð dagsins á sér sérstakan stað í hjarta mínu, ef það hverfur missi ég part af sjálfum mér.
boggi35
Vá ég fékk fyrir hjartað í dag af því að þessi orð voru ekki komin inn. Ég veit ekki hvernig ég hefði lifað dagin af hefðu þessu orð ekki komið.

Eftir að þú byrjaðir að posta þessum orðum hefur líf mitt breyst til hins betra [...]
Orrmundur
Jess! Loksins komið. Ég var farinn að hafa áhyggjur.

og voru það þessi komment sem stóðu upp úr í mínum huga. Þess vegna hef ég ákveðið að orð dagsins verði hér á huga fyrir ykkur, alla daga… Hehe, nei, nei elskurnar, bara að grínast :)

Alls voru um 17 manns sem lýstu andúð sinni á Orðum dagsins og um 22 sem sögðu skoðun sína annaðvhort með þeim eða alveg sama. Svona í ljósi þess að hinir tjáðu sig ekki vil ég leyfa mér að halda því fram að þeim sé alveg sama.

Niðurstaðan var semsagt: það eru bara örfáir einstaklingar hérna á huga eru eitthvað að rífa sig… það bara heyrist hæst í þeim sem öskra ;)