Hehehe, mér varð svo mikið hugsað til sumra hérna á huga þegar ég las orð dagsins í morgun. Það er ekki eðlilegt hvað sumir ættu að tileinka sér þessi orð hérna, þó þið séuð ekki kristin! Þessi orð eiga bara svo rosalega vel við allt sem maður gerir í lífinu:

Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra. Þetta er lögmálið og spámennirnir. (Matt. 7, 12.)

Já fólk, það er gullna reglan. Djöfulli var hann Matteus mikill snillingur, að finna upp svona hlut. Allaveganna, ekki segja mér að ég eigi að helga mér þetta, ég vil einmitt að þið komið með spekingsorð úr ykkar trú líka, þá get ég lært eitthvað um aðrar trúr ;)

Og endilega fólk, ekki spara ykkur á skítkastinu. Njótið vel ;)