Varúð.. þetta forrit er public BETA enn sem komið er og því ekki fullkomlega tilbúið. Uppsetning er á eigin ábyrgð! Þetta virðist þó svínvirka hjá mér :)

Sækja hér

Þetta er splunkunýtt Anti-Spyware tól frá Microsoft. Þetta er endurmerkt útgáfa af GIANT Anti-Spyware sem hefur fengið frábæra dóma, meðal annars fyrir að hegða sér svipað og vírusvarnarforrit og forða Spyware og Adware frá því að komast í tölvuna frá byrjun í staðinn fyrir að finna það eftirá eins og AdAware. Einnig virðist það finna töluvert fleiri spyware og adware forrit en AdAware og Spybot S&D, en ég get þó ekki staðfest það þar sem ég er ekki með neitt Spyware á tölvunni minni :P

Mæli með að fólk tékki á þessu til að halda tölvunni sinni hreinni :)