Ég var að horfa á stöð2 fyrir örfáum mínútum, þar var miðilsfundur stjórnað af Derren Brown. Allt fólkið var beðið að velja eina manneskju af tólf, ég gerði það líka. Síðan átti maður að skrifa einhverja borg á blað ég skrifaði: London, seinna kom fór fólkið í andaglas og Derren spurði, hver manneskjan væri, og andinn skrifaði: Jane, nákvæmlega sú manneskja sem ég valdi. Hún var einnig frá London. Núna líður mér einkennilega.

Voru einhverjir fleiri sem sáu þetta, ef svo hvað gerðist?