Núna eru 28% af 837 búnir að gefa til hjálparstarfsins í Asíu. Ef við gefum okkur að enginn sé svo ósmekklegur að ljúga þegar kemur að þessu þýðir það að 234 af huga.is hafa gefið til starfsins. Langlíklegast er að þetta sé 1000 kall (staðlaða upphæðin) og það þýðir að næstum kvartmilljón hefur safnast meðal þeirra sem stunda huga.is. Magnað.