Geggjuðu hugarar …
Ætlið þið að setja ykkur einhver ný markmið á nýja árinu? Hver hefur strengt áramótaheit? Hafið þið getað staðið við áramótaheit og hve lengi þá?

Ég hef tvisvar strengt áramótaheit, annað var fyrir 9 árum og ég hef haldið það alla tíð síðan en hitt var fyrir 3 árum og ég braut það strax eftir áramótin það árið .. grrrr!

Undirritaður ætlar sér að strengja nýtt áramótaheit núna og .. og .. ehmmm .. já ég er víst á forsíðunni svo ég get ekki látið uppi hérna hvaða áramótaheit mitt er en ég set það inn á hugi.is/kynlíf .. muhahahaha!

Kveðja:
Tigercop sem hefur áhuga á að vita hvað þitt áramótaheit verður og áttu von á því að geta staðið við það???