Frétt af www.mbl.is

Einn aðalleikarinn í Law and Order látinn

Jerry Orbach, sem hefur leikið eitt aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttunum Law & Order lést í gærkvöldi, 69 ára að aldri. Banamein hans var krabbamein í blöðruhálskirtli. Orbach hafði áður gengist undir læknismeðferð vegna meinsins en hún bar ekki árangur.

Orbach lék lögreglumanninn Lennie Briscoe í sjónvarpsþáttunum í 12 ár. Verið var að hefja framleiðslu á nýrri sjónvarpsþáttaröð, sem tengjast Law and Order, og var Orbach að hefja leik í þeim þegar hann greindist með krabbameinið. Til stóð að hefja sýningar á nýju þáttunum snemma á næsta ári.

Orbach var þekktur sviðsleikari og lék einkum í söngleikjum, þar á meðal Chicago, Carnival og Promises, Promises sem hann fékk Tony-verðlaun fyrir. Þá lék hann einnig í kvikmyndum, svo sem Dirty Dancing og Crimes and Misdemeanors.

Þessi maður var snillingur, fór á kostum sem Lennie í Law and order og andlát hans er miklill missir fyrir sjónvarpsþáttagerð.