Þetta er algjört HNEYKSLI!!!

Þetta er gróft misrétti gagnvart karlmönnum!!!!!

Af hverju er ekki leyft okkur að selja sæði ?

Stelpur geta bara reddað sér með því að selja eggin sín ef þær enda á götunni, á meðan strákarnir verða að sætta sig við að fara í undirheimanna!!!

ALGJÖRT HNEYKSLI!!!

Ég vil biðja alla Hugara um að mótmæla fyrir utan Art Medica í Kópavogi á morgun kl 06:06 um morguninn!

AFTUR… ALGJÖRT HNEYKSLI ÞETTA MISRÉTTI!!!
_______________________________

Mbl.is….

Einkarekna tæknifrjóvgunarstofan Art Medica í Kópavogi: Bjóða greiðslu fyrir egg til tæknifrjóvgunar

Skortur er á eggjagjöfum til tæknifrjóvgunar og hefur tæknifrjóvgunarstofan Art Medica ákveðið að óska eftir að fá egg úr konum gegn greiðslu. Greiðsla fyrir egg úr konum hefur tíðkast hér á landi en með þessu verður Art Medica milliliður milli konunnar sem þarf á egginu að halda og þeirrar sem lætur það af hendi og er það nýbreytni. Ekki er búið að ákveða hversu há upphæð verður greidd fyrir eggin, en hún verður hófleg að sögn forsvarsmanns Art Medica og gæti orðið mishá í hverju tilviki fyrir sig.

_______________________________