Ég er búinn að fá nóg af ofheitum núðlum! Kunna núðlur ekki að hitast almennilega í dag?! Þegar ég var ungur var ekki einu sinni selt neitt sem kallaðist núðlur! Hvað þá púðlur! Sem minnir mig á það að ég er líka kominn með nóg af púðluhundum! Þeir eru ljótir og illa rakaðir hamstrar sem líta út eins og loftbelgir með hárkollu! Svo er það líka þessi svokallaða mjólk okkar í dag! Þegar ég var ungur drakk maður mysu með bestu lyst! Ég kann ekkert að redda mér mysu þannig þegiði bara! Afhverju má mér ekki þykja mjólk góð? Er eitthvað aðþví að finnast mysa vond?