Shit hvað ég þoli ekki hugara sem þurfa alltaf að svara öllum póstum td. einhver sendir inn póst og spyr “hvernig gerir maður pönnukökur?” og einhver gáfaður svarar “ég veit ekki”
Það þarf ekki alltaf að segja eitthvað! Dáldið pirrandi að koma inn á huga og vera með 20 skilaboð og 60% gaurar að reyna að vera fyndnir og restin með bögg.

Svo kemur einhver mjög svo fyndinn og svarar þessum pósti bara til að segja eitthvað…