Barnaefni í dag er svo helvíti steikt! Ég sá þátt um daginn sem fjallaði um upptrekkt baðdót og hvað einni þeirra, sem var flugvél, langaði að vera með ofurkrafta :| Svo kom auðvitað svona bardagaþáttur í anda Yu-Gi-Oh og var um eitthvað fólk í framtíðinni sem flaug um á risaeðlum og var í stálbúningum með eldflaugum á.. Ekki furða að börn á Íslandi séu stór steikt og skemmd upp til hópa, svo maður minnist nú ekki á hvað þessir gemlingar eru ókurteisir!