Það sem ég þoli ekki:

1. Snjór. Ég haaaata snjó!! Hvað er málið með SNJÓ?!?! :@ Hann er allt í lagi þegar hann er í mjög litli magni, smá dunn a jörðinni og snjoar pínu þegar það er komið fram í desember og ég er á Laugaveginum að versla jolagjafir…. En EKKI í miklu magni, alveg upp að hnjám og það snjóar og snjor fer i andlitið og hárið og bara ARGHHHHHH :@ og svo þarf mahr að ganga i gegnum geggjað mikið vesen bara til að komast i skólann og svo hlaupa inn um dyrnar og inná klósett að reyna að bursta snjoinn ur hárinu áður en tíminn byrjar. Bara pirrandi.

2. Wannabe's!! Þekki nokkrar og bara hey.. getiði virkilega ekki bara verið ÞIÐ sjalfar??

3. Athyglissjúkt fólk!! Hóst… sumir sem ég ætla ekki að nefna á nafn :@

4. Fólk sem er alltaf að skipta ser af og hefur “alltaf” rétt fyrir sér…. U DON'T!!

5. Litlar wannabe gelgjur sem eru alltaf að skipta sér af öðrum eikka: OMG drekkur þú reykir þu blablabla.. Hættiði bara að skipta ykkar af annarra lífi!!

6. Staðhæfingar!! “Ég veit að Nína er tík ég sé það á henni…” Skiljiði ekki að það er ekkert hægt að dæma manneskjur áðru en mahr kynnist þeim!! Margir sem ég hef kynst reynast era allt öðruvísi en flestir búast við!

7. Dönsku.. GOD ég hata dönsku!!

8. Folk.is .. alltaf eitthvað error eða “á augnablikinu er of mikil umferð…” Pirrandi!!

9. Fólk sem fattar EKKI þegar mahr er að reyna að að koma því á framfæri að mahr vill ekki vera með þeim. T.d þegar mahr segir æi við ætluðum eila bara að vera einar.. Má ég ekki vera með?? og heldur svo áfram að suða þangað til mahr gefst upp. Vill mahr virkilega vera að hanga með einhverjum sem vill það ekki en gerði það bara til að losna við vælið i manni?? Það er frekar low…

10. Hárið á mér!! Ójá ég þoooli ekki hárið á mer!! Þegar ég er nýkomin ur sturtu er það liðað! Þegar ég er buin að slétta það er það þurrt og rafmagnað. Svo fer eg ut og það snjóar og það vrður ferlegt. Svo daginn eftir er það orðið skítugt og ferlið byrjar uppá nýtt!! ARGGHHH

11. ÚBERgelgjur sem einu sinni gengu bara í bleiku og hlustuðu á píkupopp en eru núna bunar að lita hárið dökkt, klæða sig í svört goth föt og halda folk.is síður þarsem þær skrifa á hverjum degi: OMG ég er þunglynd… allir hata mig…. ætla að drepa mig…. Fólk sem er í alvöru þunglynd auglýsir það ekki svona!! Þetta er bara kall á óþarfa athygli!!

12. Hnakka! Ætti að gefa út veiðileyfi a þá eða senda þá alla til Surtseyjar með aðeins eina túpu af geli!!

13. Þegar ég er svöng en það er EKKERT til.. :(
Computer says no