Ég tel mig frekar vera “rokkara” en “rappara” en vá hvað ég er pirraður á því að vera á Rapp áhugamálinu eða að lesa grein um rapp og þá kemur einhver fyndinn “rokkari” og segir að rapp sucki og rokk owni!
Auðvitað suckar sumt rapp, ég hef verið að reyna að hlusta á rapp undanfarið og kynnt mér margar rapp hljómsveitir og rappara og flest sem ég heyri í útvarpi er finns mér leiðinlegt rapp!
Sjálfur hata ég alla commercial og mainstream tónlist… Hvort sem það er rokk eða rapp.
Ef að allir rapparar hlusta bara á rokk sem þeir heyra á X-inu þá er ekki skrítið að þeim finnst það vera leiðinlegt.

Svo hvaða bull er þetta um að rapp fjalli bara um peninga og hvað þeir eru flottir og fly?
Þeir fjalla um allt frá að rúnka sér, taka til í herberginu sínu og ríða geitum í sundi til morðs, dóps og peninga.